Um mig
Ég er ljósmóðir á Fæðingarvakt Landspítalans og þriggja barna móðir. Ég er einnig brjóstagjafaráðgjafi IBCLC.
Ég hef brennandi áhuga á starfinu mínu og held úti instragramreikningnum Fæðingafræðsla Helgu Reynis.
Ég fræði verðandi fjölskyldur á íslensku og ensku heima í stofu. Námskeiðin eru ítarleg 3,5 klst löng gegnum netið, þá geta verðandi foreldrar verið þægindum heima hjá sér.
Á námskeiðinu fræði ég verðandi foreldra og stuðningsaðila um slysavarnir barna, parasambandið, hvernig er hægt að hlúa að því, líffræði kvenlíkamans, ferðalag barnsins niður fæðingarvegin, hlutverk stuðningsaðila í fæðingu, fæðinguna, stig hennar og bjargráð í fæðingu með og án verkjalyfja. Farið er yfir frávik í fæðingu, framhöfuðstöðu og sitjandafæðingar, keisara- og áhaldafæðingar. Farið er yfir nauðsynlegan farangur á fæðingarstað og hvað þurfi að eiga fyrir nýburann. Þá verður fjallað um sængurlegu, upphaf brjóstagjafar, fyrstu dagana heima, nýburann, fæðingarhormónin, grindarbotninn, spöngina og spangarstuðning svo eitthvað sé nefnt.
Ég sæki mér reglulega endurmenntun og passa að allar upplýsingar séu skv. nýjustu rannsóknum.